Íris
Klukkan
17.05.2007 23:13:47 / Íris

Mætt á svæðið aftur ;)

Hæ hæ
Jæja loksins skrifa ég.... er búin að vera í algjöru rugli og búin að bæta fullt af kílóum á mig :(
Búin að bæta smátt og smátt á mig eftir að ég hætti í danska  og hef bara ekki getað byrjað aftur.... það er svo erfitt þegar maður er byrjaður að svindla að vera 100% aftur. En nú ætla ég að byrja á danska og ekkert að svindla neitt...... gerði mér nýja þyngdarstiku og ætla að losna við 14kíló fyrir 16.ágúst, er það ekki alveg raunhæft eða hvað..... ????????

Jæja rosalega er gaman að byrja að blogga aftur... það peppar mann svo svakalega upp ;))
Kveðja Íris ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 21:48:40 / Íris

Ekki nógu góð helgi matarlega séð....

Jæja var að koma úr sumarbústaðnum og stóð mig alls ekki nógu vel í DDV.... var reyndar ekki að borða mikið nammi (fékk mér nokkur hlaup) en sleppti grænmetinu og var ekki nógu dugleg.... en á morgun verð ég 100% í DDV.... þýðir ekkert að væla yfir því sem liðið er... nú er bara málið að gera betur... ;)
En  það var samt rosalega kósý og gaman hjá okkur í bústaðnum... ;)
Jæja ætla að horfa á nokkra friends þætti og fara svo að lesa og sofa...

Gangi ykkur öllum rosalega vel og takk fyrir commentin.... ;)
Kveðja Íris ;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 14:01:19 / Íris

Er að fara í sveintina....

Hæ hæ Jæja ég er á leiðinni austur í sumarbústað og var í Bónus að versla fyrir ferðina og held þetta sé í fysta skipti sem við förum í bústað án þess að vera ofhlaðin af sælgætispokum og snakki og óhollustu..... ég keypti bara gott kjöt til að grilla og svo bara hollustu og reyndar popp fyrir kvöldið ;) Ótrúlegt hvað maður er vana fastur í þessum málum....... mér fannst fyrst hálf ómögulegt að vera að fara í bústað og ætla ekki að éta bara nammi og aftur nammi en common maður getur nú haft það gott án þess að liggja í sælgæti..... verður bara voða kósý hjá okkur.... Annars er ég bara í ágætis málum held ég en er samt ekki að standa mig 100%.... mundi segja svona 90% en stundum nenni ég ekki að borða allt grænmetið og sleppi hluta af vatnsskammtinum en ætla að reyna að taka á þessu.... því þetta tefur bara fyrir því að ég komist í kjörþyngd.... Jæja gangi ykkur öllum rosalega vel og takk fyrir commentin.. :) Kveðja Íris ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 13:09:42 / Íris

Var að koma úr vigtun.....

og léttingur vikunnar er nú ekki nema 300g og þá eru farin 4,2kíló á 3vikum og ég er nú bara mjög sátt við það..... ;) ætla samt að léttast meira í næstu viku... hef soðinn fisk í kvöld og reyni svo að vera duglegri í vatninu og grænmetinu.... ;)

Annars er bara allt gott að frétta er komin í frí í vinnunni fram á næsta mánudag.... það er svo æðislegt að vera í 50% vaktavinnu á svo oft alveg vikufrí....

Er heima með strákinn minn í dag... honum var eitthvað illt í maganum í morgun en svo er hann eldhress núna og við erum bara að dúlla okkur.... erum búin að vera í billjard í morgun og hann vinnur mig alltaf.....

Jæja gangi ykkur öllum vel og takk fyrir yndisleg comment... ;)

Kveðja Íris :)


» 15 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 17:35:03 / Íris

Skemmtileg helgi....

Hæ hæ Þessi helgi er búin að vera rosalega skemmtileg hjá mér.... fórum í bíó og út að borða í gær og svo fórum við öll fjölskyldan upp í Bláfjöll í dag á nýja vélsleðann og dísuss þetta er geðveikt gaman að vera á svona vélsleða.... vá ætlum sko aftur næstu helgi..... við settum kaðal aftan í sleðann og drógum strákana á skíðum aftaná og þeim fannst þetta rosalega gaman..... svo er bara að vona að snjórinn fari ekki strax..... DDV gengur fínt hjá mér, ætla að fá mér DDV lasagne í kvöld og pepsi max... mmmmm Jæja gangi ykkur öllum vel og takk fyrir commentin.... ;) ;) ;) Kveðja Íris :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 18:26:43 / Íris

Jæja var í vigtun....

léttist um 1 kíló þessa vikuna og fékk límmiða hehe :) Er þá búin að léttast um 3.9 kíló á tveimur vikum og á 6.1 kíló eftir í 10 kílóa takmarkið.... :) Er bara í góðum gír og líður vel..... helgin var erfið en mér tókst samt að standast freistingarnar..... Bauð vinkonu minni í DDV heitan rétt og ís í dag og henni fannst þetta æði..... það er svo margt girnilegt hægt að gera úr DDV..... þess vegna hentar það mér svona vel.... Jæja verð að drífa mig er að fara í heimsókn til einnar úr vinnunni.....hlakka ferlega til að hitta þær og eldri strákurinn minn ætlar að passa bræður sína því kallinn minn er í vinnuferð erlendis.... Jæja gangi ykkur öllum vel og takk fyrir öll commentin.... ;) Kveðja Íris ;)

» 9 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 17:17:06 / Íris

Er búin að vera veik....... ;(

Hæ hæ
Var að vinna alla helgina og sl. nótt fékk ég alveg hræðilega gubbupest.... var svo veik að ég hélt bara að ég yrði ekki eldri ;(
Er svo búin að vera slöpp í dag og hef enga matarlyst... þannig að ég hef ekki getað fylgt DDV í dag.... verð vonandi hressari á morgun og tek þá 100%DDV dag og svo er vigtun á miðvikudaginn ;)
Annars er allt gott að frétta, vorum að fá okkur vélsleða og ætlum upp í fjöll næstu helgi að leika okkur...... ;)
Takk æðislega fyrir öll commentin, þið haldið mér sko við efnið... ;)
Gangi ykkur rosalega vel og hafið það gott..... ;)
Kveðja Íris ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 14:16:55 / Íris

Var í vigtun.....

og léttist um 2,9 kíló..... er ekkert smá ánægð með það, nú eru bara 7.1 kg eftir í 10 kílóa múrinn :) Fór í Hagkaup eftir vigtunina og keypti mér fullt af DDV ís... hann er alveg hrikalega góður með heitri eplaköku... mmmmm. Annars er bara allt fínt að frétta er að reyna að sparka í rassinn á mér og drífa mig í ræktina er alveg hrikalega löt við það ;/ Jæja ætla að fara að fá mér grænmetisboost og harðfisk í hád.mat........ og svo ætla ég út að labba með Erró ;) Ég get ekki lengur komið vigtarmælistikunni inn hjá mér... hafið þið lent í vandræðum með það????? Gangi ykkur öllum rosalega vel og takk æðislega fyrir öll commentin ;) Kveðja Íris ;)

» 15 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 22:42:43 / Íris

Varð að monta mig smá.....

...Var að koma úr rosalega flottri þrettánda veislu... fékk mér EKKERT óhollt.... drakk bara coke light og kaffi... það voru sko alveg hrikalega freistandi veitingar í boði eins og t.d pizzur, kókosbolluterta, heitir og kaldir réttir og fleira gúmmulaði en það sem ég hugsaði var bara að ég fengi mér DDV ís og jarðaber þegar ég kæmi heim og vá er ekkert smá stolt af mér.... held að maður hljóti að styrkjast í hvert skipti sem maður lætur freistingarnar eiga sig.... ;) En ég hlýt nú að fara að læra það að það er ekki til neitt hjá mér sem heitir að smakka smá.... þarf alltaf að klára allan pakkann!!! Ef eitthvað er að freista mín þarf ég bara að minna mig á það hvað mér leið rosalega vel eftir að ég grenntist á danska, bæði á líkama og sál ;) Jæja ætla nú að drífa í að fá mér DDV ís og eitthvað gúmmulaði...... mmmmmm Jæja takk æðislega fyrir allan stuðninginn og að gefast ekki upp á mér..... ;) Gangi ykkur öllum allt í haginn ;) Kveðja Íris ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 23:17:33 / Íris

Byrjuð aftur ;)

Hæ hæ öll og gleðileg ár ;)

Jæja ég skellti mér á byrjunarfund hjá danska 2.jan.2007 og er byrjuð á fullu aftur.
Var búin að bæta á mig fullt af kílóum yfir jólin og frá því ég datt úr gírnum einhvertíma fyrir jól....  :^)
En það þýðir ekkert að væla yfir því heldur ætla ég að standa mig jafnvel núna og síðast þegar ég var á danska..... ég veit ég get þetta því ég hef sýnt það og sannað ;)
Ég ætla að stefna að því að losna við 10kg fyrir 1.mars 2007 og setja mér þá nýtt markmið.
Var að gera mér rosalega góðan DDV ís og súkkulaði sósu mmmmm ;)
Ætla að vera dugleg að blogga því það hjálpar svo mikið að fá stuðning frá ykkur. Gangi ykkur öllum rosalega vel og hafið það gott ;)
Kveðja Íris.......sem er alveg hrikalega ánægð að vera að taka á sínum málum aftur ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 16:19:48 / Íris

Ég fæ svo mikla orku við að eyða orku...

skil þetta ekki alveg...... ótrúlegt hvað það gefur manni mikla orku að fara í ræktina og eyða orku.... skil þetta ekki alveg en svona virkar þetta víst.... ;)))))
Ég fór 5x þessa viku að æfa og einu sinni með kallinum og það var æði, alveg eins og í gamla daga, en við æfðum alltaf saman áður en við eignuðumst strákana og nú loksins eru þeir orðnir svo stórir að við höfum aftur tíma saman... ;)))
Gengur rosalega vel í DDV ;)   Fór í æðislegt matarboð í gær hjá systur minni og manninum hennar, algjör veisla, geggjað nautakjöt og allt tilheyrandi.... ferlega skemmtilegt.

Dísuss svo er bara allt á kafi í snjó, ég er nú ekkert sérlega ánægð með það en  þvílík hamingja hjá strákunum, þeir eru bara úti allan daginn í snjónum, sem er alveg frábært ;)

Jæja ég ætla að halda áfram og stefni að því í næstu viku að vera enþá duglegri að borða fisk ;)

Gangi ykkur öllum vel og hafið það gott í komandi viku ;)

Kveðja Íris ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 16:55:44 / Íris

Jæja nú er sko allt í gangi hjá mér ;)

Hæ hæ
Ástæðan fyrir blogg leysinu hjá mér er sú að mér er búið að ganga rosalega illa bæði í danska og svo hef ég ekkert nennt að hreyfa mig í langan tíma.
En nú mun verða breyting þar á, nú fylgji ég danska 100% og er byrjuð að æfa. Ég ákvað í sameiningu með þjálfaranum að ég myndi lyfta 2x í viku og brenna 3x og hann útbjó fyrir mig prógramm og vá  hvað mér leið rosalega vel þegar ég var búin að fara í fyrsta tímann, fannst ég alveg hafa lést um 10kg hehehe ;) ;) ;)
Ég er alveg rosalega ánægð að vera byrjuð að æfa, er búin að vera á leiðinni svo lengi en hef alltaf fundið mér einhverja afsökun :S
Jæja best að fara að elda, ætla að fá mér marineraðar svínalundir, steikt grænmeti og salat með mangó í kvöldmatinn.
Jæja gangi ykkur öllum vel.
Kveðja Íris ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 14:46:29 / Íris

Fór ekki í vigtun.....

þessa vikuna, ákvað að sleppa því þar sem síðasta helgi var algjör sukk helgi hjá mér, nennti ekki að svekkja mig á því að fara í vigtun, en stend mig 100% núna og fer í vigtun næsta miðvikudag.

Jæja best að drífa sig í vinnuna með nesti með sér...

Hafið það gott og takk fyrir commentin og gangi ykkur öllum vel ;)))

Kveðja Íris


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 13:04:48 / Íris

Var í vigtun.....

og léttist um 2,9 kíló..... þetta er náttúrulega bara djók þessi danski. Ég er alltaf borðandi og léttist samt.... þetta er snilld...   ;)

En nú er ég komin í 5daga frí í vinnunni og er búin að skúra allt hjá mér og allt hrikalega fínt og flott.... ;)  og í kvöld ætla ég að fara að hitta nokkrar hjúkkur og við ætlum að eiga kósý kvöld saman... ferlega skemmtilegt... ;)

Jæja takk fyrir commentin og gangi ykkur öllum vel.... ;)

Kveðja Íris


» 17 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 13:09:57 / Íris

Er í góðum gír núna ;)

Hæ hæ

Helgin gekk rosalea vel..... var að vinna alla helgina, fer á kvöldvakt í kvöld og er svo komin í 5daga frí.... það er æðislegt að fá alltaf svona löng frí milli vakta.

Á morgun fer ég í vigtun og hlakka bara til að fara því ég er búin að standa mig rosalega vel alla vikuna.... hlýt að vera búin að léttast eitthvað, finn líka bara strax mun á fötunum ;)

Ég er að fara til Spánar eftir 3vikur og hlakka alveg hrikalega til að slaka á í sólinni í heila viku.... við ætlum að taka strákana með en þeir vita ekki af því... nenni ekki að segja þeim það strax því ég veit að þeir verða svo hrikalega spenntir þannig að ég ætla að bíða með að segja þeim það þangað til eftir samræmdu prófin... ;))

Jæja ég held bara áfram að vera dugleg. Takk fyrir innlitið á síðuna og endilega commentið á mig... það er svo peppandi.....

Gangi ykkur öllum vel

Kveðja Íris ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti