...Var að koma úr rosalega flottri þrettánda veislu... fékk mér
EKKERT óhollt.... drakk bara coke light og kaffi... það voru sko
alveg hrikalega freistandi veitingar í boði eins og t.d pizzur,
kókosbolluterta, heitir og kaldir réttir og fleira gúmmulaði en það
sem ég hugsaði var bara að ég fengi mér DDV ís og jarðaber þegar ég
kæmi heim og vá er ekkert smá stolt af mér.... held að maður hljóti
að styrkjast í hvert skipti sem maður lætur freistingarnar eiga
sig....

En ég hlýt nú að fara að læra það að það er ekki til
neitt hjá mér sem heitir að smakka smá.... þarf alltaf að klára
allan pakkann!!! Ef eitthvað er að freista mín þarf ég bara að
minna mig á það hvað mér leið rosalega vel eftir að ég grenntist á
danska, bæði á líkama og sál

Jæja ætla nú að drífa í að fá mér
DDV ís og eitthvað gúmmulaði...... mmmmmm Jæja takk æðislega fyrir
allan stuðninginn og að gefast ekki upp á mér.....

Gangi ykkur
öllum allt í haginn

Kveðja Íris